Slys á Gaulverjabæjarvegi

Fyrir nokkrum dögum varð slys á vegkafla þeim sem skilinn var eftir við lagningu slitlags á Gaulverjabæjarvegi sl. sumar og haust.
Slysið varð með þeim hætti að bílstjóri missti stjórn á bíl sínum og velti á móts við bæinn Tungu þegar komið var út af malbikinu inn á malarvegskaflann sem var skilinn eftir.

Sveitarstjórn Flóahrepps sendi frá sér eftirfarandi ályktun 5. september og varaði við þessu þar sem um 800 metra vegspotti með tveimur kröppum beygjum kemur í beinu framhaldi af sléttu slitlagi.

„Unnið er að langþráðri uppbyggingu vegar 33 í Flóahreppi frá Skipum að Gaulverjabæ. Allt stefnir í að ekki verði hægt að ljúka vegalagningunni í gegnum land Vestri-Loftsstaða. Sveitarstjórn Flóahrepps krefst þess að Vegagerðin nái samkomulagi við landeigendur nú þegar til að hægt verði að ljúka uppbygginu vegarins. Ljóst er að verði framkvæmdin ekki kláruð skapast stórhættuleg slysagildra á þeim stöðum sem stefnir í að malbikið endi“.

Að gefnu tilefni eru vegfarendur varaðir við þessum hættulega vegspotta sem er á móts við afleggjarann að Tungu og Hólum.