Háskólafélag Suðurlands

Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt tillögu stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands um að eignarhlutur Flóahrepps í verkefnasjóði félagsins í lok árs 2007 verði lagður inn í væntanlegt Háskólafélag Suðurlands ehf. sem hlutafé og fagnar framtaki um háskólafélag.

Liðin eru tvö ár síðan samþykkt var á aðalfundi SASS að verja þeim fjármunum sem til voru í Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands þegar lánastarfssemi var aflögð þar, til uppbyggingar háskólanáms.
Undirbúningur hefur staðið yfir undanfarið ár og stofnað var hlutafélagið Háskólafélag Suðurlands.
Stefnt er að því að koma upp samstarfsneti ýmissa aðila, kennsluráðgjafa af hálfu ríkis, sjálfstæðra rannsóknarstofnana á Suðurlandi, símenntunarmiðstöðva og erlendra háskóla í náinni samvinnu við atvinnulífið.