Sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi eru uppteknir þessa dagana vegna ýmissa þinga og ráðstefna.
Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga var haldið 1. – 2. nóvember á Kirkjubæjarklaustri
þar sem fram fóru aðalfundir SASS, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Skólaskrifstofu Suðurlands og Sorpstöðvar Suðurlands.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga verður haldin í Reykjavík 5. – 6. nóvember.
Meðal gesta ársþingsins voru Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðherra, Árni Mathiesen.
Fyrirlesarar voru m.a. Anna Margrét Guðjónsdóttir forstöðumaður Brusselskrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga sem flutti fyrirlestur um áhrif ESB á íslensk sveitarfélög, Sigrún Guðmundsdóttir flutti áhugaverðan fyrirlestur um vatnsmál, Pétur Ingi Haraldsson var með fyrirlestur um skipulagsmál, Sveinn Aðalssteinsson kynnti málefni háskóla á Suðurlandi og Ögmundur Einarsson kynnti svæðisáæltun og samstarf sveitarfélaga á suðvesturhluta landsins.
Nýr formaður SASS er Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í Mýrdalshreppi.
