Fulltrúar sveitarstjórnar Flóahrepps áttu fund með þingmönnum Suðurkjördæmis í Vík í Mýrdal föstudaginn 26. október.
Samkvæmt áætlun átti sveitarstjórn að hitta þingmenn í Þorlákshöfn fimmtudaginn 25. október en sökum áður skipulagðrar ferðar sveitarstjórnar um Flóahrepp var ákveðið að fara til Víkur og funda ásamt sveitarstjórnarmönnum Mýrdalshrepps með þingmönnum.
Ýmsilegt bar á góma varðandi Flóahrepp, s.s. vatnsmál, hitaveitumál, samgöngumál, hátt verð á raforku og virkjanamál.
Fundurinn var góður, þingmenn hlustuðu á sveitarstjórnarmenn og líflegar umræður spunnust um þau mál sem brenna á sveitarstjórnarmönnum.
