Stjón ungmennafélagsins Vöku hefur sent inn erindi til sveitarstjórnar og lýst áhuga á þátttöku í byggingu fjölnota íþróttahúss við Þjórsárver/Flóaskóla.
Með byggingu þess myndi aðstaða til fjölbreyttrar íþróttaiðkunar lagast til muna fyrir nemendur Flóaskóla svo og aðra íbúa sveitarfélagsins.Ungmennafélagið er tilbúið að koma að verkefninu með kaupum á áhöldum og tækjum, sjálfboðavinnu, hugmyndavinnu og fleiru.
Sveitarstjórn þakkaði gott erindi og samþykkti að taka málið upp í tengslum við framtíðarstefnu Flóaskóla og fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
