Húsaleigubætur

Þeir aðilar sem hyggjast sækja um húsaleigubætur þurfa að skila umsókn á skrifstofu sveitarfélagsins á þar til gerðu eyðublaði og gildir umsóknin til áramóta hvers árs nema hjá nemendum en þeirra umsókn gildir jafnlengi og húsaleigusamningur. 

Umsóknareyðublöð liggja m.a. frammi á skrifstofu. Sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og þarf endurnýjun umsóknar að eiga sér stað í síðasta lagi 16.janúar ár hvert. Með umsókn þarf að fylgja frumrit þinglýsts húsaleigusamnings, ljósrit af skattframtölum þeirra sem eiga lögheimili í íbúðinni fyrir síðasta ár, staðfest af skattstjóra og launaseðlar þriggja síðustu mánuða.


Óskað er eftir því að þeir nemendur, sem njóta húsaleigubóta, tilkynni ef breytingar verða á þeirra aðstæðum s.s. ef leigu lýkur fyrr en leigusamningur segir til um.