Almennur kynningarfundur fyrir íbúa Flóahrepps á drögum að aðalskipulagi fyrrum Villingaholtshrepps var haldinn þann 25. júní sl. Á fundinum voru kynntar tvær tillögur, ein án hugsanlegrar Urriðafossvirkjunar og ein tillaga með virkjuninni. Sveitarstjórn mat það svo að eðlilegt væri að kynna báðar tillögurnar fyrir íbúum Flóahrepps til að fá fram sjónarmið þeirra. Á fundi sveitarstjórnar þann 2.júlí s.l. var lögð fram fundargerð af íbúafundinum.
Jafnframt voru lögð fram erindi frá eftirtöldum aðilum sem gera athugasemdir við það að Urriðafossvirkjun verði sett inn á aðalskipulag fyrrum Villingaholtshrepps.
Sól á Suðurlandi, Sól í Straumi og Sól á Suðurnesjum
Veiðifélag Þjórsár
Arnleif Margrét Kristinsdóttir
Ferðamálafélag Flóamanna
Ólöf Sverrisdóttir
Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir
Halla Kjartansdóttir
Umhverfisnefnd Flóahrepps
Náttúruverndarsamtök Suðurlands
Sól í Flóa
Erna Gunnarsdóttir og Jón Árni Vignisson
Einnig lögð fram 65 póstkort frá ýmsum aðilum með áskorun um verndun Þjórsár með eða á móti virkjun.
Á fundinum var lagt fram erindi frá Daniela Schmitz og Walter Schimtz þar sem óskað er eftir því að sveitarstjórn Flóahrepps efni til almennrar atkvæðagreiðslu um málefni Urriðafossvirkjunar.
Sveitarstjórn samþykkti að fresta ákvörðun um tillögu til auglýsingar að aðalskipulagi fyrrum Villingaholtshrepps þar til fyrir liggja nánari upplýsingar um áhættu af hugsanlegri Urriðafossvirkjun. Vinna við áhættumat er þegar hafin.
Sveitarstjórn leggur jafnframt áherslu á að ljúka þurfi samningaviðræðum sem í gangi hafa verið milli fulltrúa Landsvirkjunar og Flóahrepps, en þær viðræður hafa verið í gangi síðan í janúar á þessu ári. Í þeim viðræðum hefur verið unnið að því að fá fram hvaða hugsanlegar mótvægisaðgerðir Landsvirkjun mun ráðast í, ef af framkvæmdum við Urriðafossvirkjun verður í nánustu framtíð.
