Samningur um skólaakstur

Gerður hefur verið samningur við skólabílstjóra Flóahrepps um skólaakstur til næstu fjögurra ára.

Það eru Guðmundur Sigurðsson, Kristján Einarsson, Sigurður Ólafsson, Guðrún Jónsdóttir og Guðmundur Tyrfingsson ehf sem munu annast skólaaksturinn en flest þeirra hafa séð um skólaakstur í sveitarfélaginu í mörg ár. 

Mikil sátt hefur verið um störf bílstjóranna og ánægjulegt að nú skuli hafa verið skrifað undir samning um áframhaldandi akstur af þeirra hálfu í ákveðinn tíma.

Þess má til gamans geta að í ár eru 40 ár síðan Guðmundur Tyrfingsson hóf skólaakstur í fyrrum Gaulverjabæjarhreppi og var sveitarstjóra færður blómvöndur frá fyrirtækinu í tilefni þess.