Samkomulag um rekstur félagsheimilis

Mánudaginn 4. júní var skrifað undir undir samkomulag um rekstur félagsheimilisins Þingborgar milli sveitarfélagsins og húsnefndar félagsheimilisins.

Með samkomulaginu ber húsnefnd meiri ábyrgð á rekstri hússins en verið hefur. Sveitarfélagið greiðir mánaðarlegt framlag vegna aðstöðu fyrir skrifstofu og leikskóla, æskulýðsmál og menningarmál. Húsnefnd sér um að reka félagsheimilið, s.s. afla tekna í formi útleigu og styrkja, gera fjárhagsáætlanir og annast daglegan rekstur.

Það voru Margrét Sigurðardóttir fyrir hönd sveitarfélagsins og Halldóra Gunnarsdóttir fyrir hönd húsnefndar sem skrifuðu undir samkomulagið.

Á myndinni eru einnig Ingibjörg Einarsdóttir húsvörður og Aðalsteinn Sveinsson oddviti.