Íbúafundur

Íbúafundur verður haldinn í Þjórsárveri 25. júní 2007 kl. 20.30 þar sem lögð verða fram drög að aðalskipulagi fyrrum Villingaholtshrepps til kynningar ásamt breytingum á aðalskipulagi Hraungerðishrepps og Gaulverjabæjarhrepps.

Það er Gísli Gíslason hjá Landmótun sem hefur unnið tillögur með hreppsnefnd fyrrum Villingaholtshrepps og síðar með sveitarstjórn Flóahrepps og mun hann kynna þær á fundinum ásamt sveitarstjórn.

Aðalskipulag Hraungerðishrepps var staðfest 2006 og aðalskipulag í Gaulverjabæjarhreppi var staðfest 2005. Vegna vinnu við aðalskipulag Villingaholtshrepps þarf að gera breytingar á þeim til að samræma ýmis atriði.

Reiknað er með að þegar vinnu við aðalskipulag Villingaholtshrepps hefur verið lokið verði farið í vinnu við að sameina aðalskipulag gömlu hreppanna þriggja í eitt.

Íbúafundur

Stefnt er að því að halda íbúafund vegna aðalskipulagsvinnu í Villingaholtshreppi 25. júní í Þjórsárveri kl. 20.30.

Samþykkt var að ljúka gerð þeirrar tillögu þar sem hún var langt á veg komin við sameiningu hreppanna þriggja.Það er Gísli Gíslason hjá Landmótun sem hefur unnið tillöguna með hreppsnefnd fyrrum Villingaholtshrepps og síðar með sveitarstjórn Flóahrepps.

Aðalskipulag Hraungerðishrepps er tilltölulega nýundirritað og aðalskipulag í Gaulverjabæjarhreppi var undirritað 2003.

Reiknað er með að þegar vinnu við aðalskipulag Villingaholtshrepps hefur verið undirritað verði farið í vinnu við að sameina aðalskipulag í nýju sveitarfélagi.