Fulltrúar sveitarstjórnar Flóahrepps og Landsvirkjunar hittust á fundi í morgun og ræddu skipulagsmál með tilliti til væntanlegrar kynningar á drögum að aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir íbúum þess.
Viðræðum milli aðila, sem í gangi hafa verið, verður haldið áfram á næstunni um áhrif Urriðafossvirkjunar í Flóahreppi og hvernig við þeim verður brugðist. Í því sambandi er m.a. rætt um samgöngur og ferðaþjónustu á svæðinu, vatnsvernd, lífríki Þjórsár, landnotkun í nágrenni virkjunarinnar og mögulegar mótvægisaðgerðir.
Sveitarstjórn mun halda íbúafund þann 25. júní n.k. þar sem tillögur að aðalskipulagi verða kynntar með og án Urriðafossvirkjunar. Í framhaldi af því er gert ráð fyrir formlegu auglýsingar- og kynningarferli í samræmi við skipulagslög.Það er von viðræðuaðila að sameiginleg niðurstaða fáist sem fyrst um nauðsynlegar mótvægisaðgerðir og önnur samskipti aðila vegna fyrirhugaðrar Urriðafossvirkjunar.
Þingborg 15. júní 2007
Sveitarstjórn Flóahrepps og Landsvirkjun
