Framkvæmdir í Flóahreppi

Gerður hefur verið verksamningur við Kríutanga ehf um viðgerð á þaki leikskólans Krakkaborgar samkvæmt tilboði í verðkönnun 23. maí 2007. Viðgerðin felur í sér rif og förgun á eldra þakjárni og þakköntum, setja nýtt járn á þak ásamt þakköntum, rífa stromp, athuga lekaskemmdir ofl.

Verkið verður unnið í júlí á meðan sumarleyfi er í leikskóla. Kostnaðaráætlun er hærri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir og verður tekið tillit til þess við endurskoðun áætlunar.


Lóðagerð við Þingborg er nú nánast lokið.
Fyrirtækið Suðurlandsverktakar hafa annast framkvæmdir sem fól í sér lóðagerð kringum félagsheimilið Þingborg, hellulögn, frágang á bílastæðum með kantsteinum ofl.


Tilboðsverð voru samkvæmt þeim kostnaði sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáæltun.


Óskað var eftir tilboðum í viðbyggingu við kennarabústað við Flóaskóla og voru þau opnuð 14. júní s.l.


Stærð viðbyggingar er um 40m2 og skal verki lokið að fullu fyrir 1. október 2007 samkvæmt útboði