Byggðamerki Flóahrepps

Hér má sjá nýtt byggðamerki fyrir Flóahrepp sem valið var í hugamyndasamkeppni fyrir skömmu.

Í lýsingu með merkinu segir:

Blár liturinn táknar hreina og tæra náttúru.


Lóðréttu línurnar í merkinu tákna Flóaáveituna.


Fuglarnir 3 eru tákn hreppanna þriggja sem sameinuðust og mynduðu Flóahrepp. Fuglarnir tákna einnig fjölskrúðugt fulga-og dýralíf.


Regnboginn er einnig í merkjum Krakkaborgar og Flóaskóla.




Innsendar tillögur eru til sýnis á skrifstofunni í Þingborg.