Ársreikningur Flóahrepps

Ársreikningur A og B-hluta Flóahrepps fyrir árið 2006 var lagður fram til seinni umræðu á fundi sveitarstjórnar 13. júní.

Ársreikningurinn samanstendur af rekstri sveitarfélaganna þriggja fyrri hluta ársins og rekstri sameinaðs sveitarfélags seinni hluta ársins. Samanburðarfjárhæðir við árið 2005 í efnahagsreikningi eru samanlagðar fjárhæðir allra sveitarfélaganna.

Til A hluta telst starfsemi sem er að hluta eða öllu leyti fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða Aðalsjóð og Eignasjóð.


Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta starsemi Flóahrepps eru vatnsveita og leiguíbúðir.


Ársreikningurinn var til fyrri umræðu 6. júní s.l og kom Auðunn Guðjónsson endurskoðandi KPMG á fund sveitarstjórnar og kynnti reikninginn.


Helstu niðurstöður samantektar A og B hluta eru eftirfarandi:


Heildarrekstrartekjur kr. 255.431.603


Heildarrekstrargjöld kr. 243.436.065


Rekstrarniðurstaða kr. 6.771.800


Eigið fé kr. 230.222.517


Skuldir kr. 140.559.161


Eignir kr. 370.781.678


Ársreikningurinn var samþykktur samhljóða og áritaður. Hann er aðgengilegur á heimasíðunni hér. Þeir sem óska eftir útprentuðum eintökum geta nálgast þau á skrifstofu sveitarfélagsins.