Unglingavinna

Auglýst er eftir unglingum, 13 ára og eldri til vinnu í sumar í vinnuskóla sveitarfélagsins frá 11. júní til 19. júlí.

Unnið verður 4 daga vikunnar, mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9.00-16.00


Einnig er auglýst eftir flokkstjóra í vinnuskóla, 17 ára eða eldri.


Tekið er á móti skráningum á skrifstofu sveitarfélagins til 30. maí n.k. í síma 482-3260 frá kl. 9.00-13.00.