Fulltrúar Flóahrepps og Árborgar hafa nú skrifað undir samkomulag um námsvist í grunnskólum Árborgar og samkomulag um afnot af félagsmiðstöðinni Zelsius.
Með samkomulaginu skuldbindur Árborg sig til að veita nemendum 8. – 10. bekkja sem lögheimili eiga í Flóahreppi, námsvist í Vallaskóla.
Nemendum er einnig heimilt að nýta Félagsmiðstöðina Zelsíus í samræmi við starfsemi miðstöðvarinnar og opnunartíma.
Flóahreppur greiðir mánaðarlegt gjald í níu og hálfan mánuð á ári sem svarar meðalrekstrarkostnaði á nemanda á ári í Vallaskóla og sér um akstur úr sveitarfélaginu í skólann.
Samkomulagið gildir til 15. ágúst 2011.
