Framboðsfundur

Sveitarstjórn Flóahrepps stóð fyrir fundi 17. apríl s.l. með fulltrúum þeirra flokka sem staðfest hafa framboð í Suðurkjördæmi vegna komandi Alþingiskosninga. Þeir frambjóðendur sem mættu voru Guðni Ágústsson fyrir Framsóknarflokkinn, Árni Mathiessen fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Óskar Þór Karlsson fyrir Frjálslynda flokkinn, Ásta Þorleifsdóttir fyrir Íslandshreyfinguna, Björgvin G. Sigurðsson fyrir Samfylkinguna og Atli Gíslason fyrir Vinstri hreyfinguna, grænt framboð. Guðbjörg Jónsdóttir stýrði fundi.

Þau mál sem mesta umfjöllun fengu voru samgöngumál, virkjanamál og landbúnaðarmál. Íbúar Flóahrepps eru sammála um að tengivegir í sveitarfélaginu eru í óásættanlegu ástandi og úrbætur brýnar.


Fyrirspurnir og umræður um virkjanamál og landbúnaðarmál voru líflegar og mismunandi sjónarmið sem þar komu fram.


Góð mæting var á fundinn eða um áttatíu manns sem er um það bil 20% af íbúum á kjörskrá.