Draumur á Jónsmessunótt

Laugardaginn 10.mars s.l. varð undirrituð þeirrar ánægju aðnjótandi að sjá gamanleikinn Draumur á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare í flutningi ungmennafélaganna þriggja í Flóahreppi, Baldurs, Vöku og Samhygðar í leikstjórn Gunnars Sigurðssonar, leikstjóra og leikara.

Það var ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur þegar kom að vali á leikverki til sýningar og lýsir kannski best metnaði þeirra sem að leikhópnum standa og leikstjóra þeirra.


Einhver hefði ímyndað sér að kjarnyrtur texti Shakespeares, mikið til í bundnu máli, væri tyrfinn og erfiður en hann rann upp úr leikurum algjörlega áreynslulaust.


Ég hef veitt athygli, undirbúningi við leiksýninguna og dáðst að því í fjarlægð af hversu miklum áhuga og dug aðstandendur sýningar hafa unnið, ekki eingöngu við æfingar leikritsins heldur einnig við lagfæringar á sviði, leikmyndagerð, gerð leikbúninga, ljós, hljóð og svo mætti lengi telja.


Allt þetta gerir það að verkum að áhorfandi skynjar stemninguna um leið og hann gengur í salinn og það er eins og maður sé kominn út í dimman skóg á sextándu öld, þar sem álfar og púkar ráða ríkjum og ráðskast með ástir og örlög mannanna.


Það er með mig eins og sjálfsagt marga aðra, að allt of lítill tími er gefinn til að stunda menningarviðburði af ýmsu tagi en ég hvet alla til að sjá þessa sýningu hjá ungmennum Flóahrepps.


Það er í raun ekki hægt að láta þennan viðburð fram hjá sér fara og ég er strax farin að hlakka til að sjá hvað þessi metnaðarfulli leikhópur áhugamanna í Flóahreppi setur á svið næst.


Leikritið er flutt í félagsheimilinu Þingborg og eru auglýstar sýningar 15. mars, 16.mars, 18.mars, 22.mars, 23.mars, 25.mars, 29.mars og 30.mars.


Margrét Sigurðardóttir