Skipulags-og byggingarmál

Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt samstarf við uppsveitir Árnessýslu um skipulags-og byggingarmál en þar er rekið öflugt starf á þessu sviði. Kostnaður við embættið verður greiddur með tekjum þess, þ.e. reiknað er með að málaflokkurinn standi undir sér en falli til kostnaður við endanlegt uppgjör hvers árs, greiðist hann í hlutfalli við fjölda teikninga (25%), fjölda byggingarleyfa (25%) og fjölda mála í skipulagsnefnd (50%).

Sveitarstjórn hefur einnig samþykkt að Aðalsteinn Sveinsson, oddviti verði fulltrúi Flóahrepps í sameiginlegri skipulagsnefnd uppsveita Árnessýslu og Guðbjörg Jónsdóttur til vara.


Skipulags- og byggingarnefnd Flóahrepps mun tilnefna fulltrúa i sameiginlega byggingarnefnd uppsveita og einn til vara.


Sveitarstjóra var falið að ganga frá starfslokum við skipulags-og byggingarfulltrúa Flóahrepps.


Sveitarstjórn hafa borist bréf frá sumarhúsaeigendum í Merkurhrauni og Mörk þar sem lýst er yfir óánægju með þá ákvörðun sveitarstjórnar að gera samning um starfslok við skipulags-og byggingarfulltrúa vegna samstarfs um skipulags- og byggingarmál við uppsveitir Árnessýslu.


Einnig liggur fyrir bréf frá íbúa sveitarfélagsins þar sem hann mótmælir ákvörðun sveitarstjórnar.


Sveitarstjórn harmar óánægju bréfritara og bendir á að þessar skipulagsbreytingar eru gerðar með það í huga að þjónusta verði ekki minnkuð jafnframt því sem um faglegan og fjárhagslegan ávinning er að ræða fyrir sveitarfélagið þar sem skipulagsmál verða sífellt umfangsmeiri og flóknari og krefjast meiri sérþekkingar.