Upplýsingasíða Flóahrepps, http://www.floahreppur.is/ var formlega opnuð 16. febrúar s.l. Það var Aðalsteinn Sveinsson, oddviti sem opnaði síðuna. Henni er ætlað að innihalda alhliða upplýsingar fyrir alla þá sem áhuga hafa á sveitarfélaginu og málefnum þess.
Það var fyrirtækið Aicon ehf á Selfossi sem hannaði heimasíðuna og sá um uppsetningu hennar eftir að leitað hafði verið tilboða til nokkurra aðila sem sérhæfa sig í slíku. Síðunni er ætlað að vera aðgengileg og þægileg í notkun og það er sjálfsögð krafa íbúa í nútímasamfélagi að geta nálgast allar upplýsingar sem viðkemur stjórnsýslu, þjónustu og afþreyingu í hverju sveitarfélagi á einfaldan og auðveldan máta.
Heimasíðan er þannig uppbyggð að stofnunum Flóahrepps er gert jafnhátt undir höfði. Þannig eru tenglar inn á hverja stofnun þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um hverja þeirra fyrir sig. Á forsíðu verða fréttir og tilkynningar, tenglar, myndasafn, viðburðadagatal, fundargerðir og ýmislegt fleira sem tengist stofnunum sveitarfélagsins.
