Gjaldskrá leikskóla

Á fundi sveitarstjórnar 7. febrúar var samþykkt að hækka gjaldskrá og fæðiskostnað í leikskólanum Krakkaborg.


Hækkun á gjaldi fyrir börn 9 mánaða til 2 ára verður í þremur áföngum, 20% hækkun 1. apríl 2007, 20% hækkun 1. september 2007 og 10% hækkun 1. febrúar 2008 eða alls 50% hækkun. Þetta er þjónusta sem er yfirleitt ekki í boði á leikskólum og er kostnaðarsöm þar sem hver starfsmaður má einungis annast 4 börn en til samanburðar má hver starfsmaður annast um 8 börn á eldri deildum. Þar sem þjónusta á borð við þessa er veitt, er verð 50% hærra fyrir þennan aldurshóp.

Gjald fyrir börn 2 ára til 5 ára hækkar úr 125 kr pr/klst í 130 kr pr/klst og tekur gildi 1. apríl 2007.


Fæðiskostnaður hækkar úr 115 kr pr/dag í 150 kr pr/dag 1. apríl n.k. en matargjald hefur hefur ekki breyst í 2-3 ár þrátt fyrir hækkanir á neysluverðsvísitölu. Þrátt fyrir þessa hækkun er gjaldið enn talsvert lægra en í nágrannsveitarfélögum þar sem gjald fyrir hádegismat er á bilinu 170 kr. – 200 kr. pr/dag.


Gjaldskrá leikskólans mun eftirleiðis taka breytingum samkvæmt breytingum á vísitölu neysluverðs um áramót einu sinni á ári, 1. febrúar ár hvert.


Sveitarstjórn hefur einnig samþykkt að starfsmaður á yngstu deild Krakkaborgar verði gerður að deildarstjóra.